Titillinn minnti mig á ljóð, sem heitir Sultur, en það lásum við í íslensku hjá Sverri Páli í menntaskóla. Að óathuguðu máli hefði það getað fjallað um allskonar sultur, en að sjálfsögðu var inntakið allt annað og alvarlegra, en mér finnst samt tilhugsunin alltaf svolítið fyndin. Jarðarberja-sultur. (Enda sjaldan verið svöng lengur, en sem nemur tímanum sem það tekur magann að gefa heilanum til kynna að hann sé tómur. Maginn, altso.)
Skorturinn, sem ég var að hugsa um snýst reyndar um mat. Sennilega eru fáir að hugsa um næstu kvöldmáltíð klukkan tvö að nóttu, en ég er að reyna að finna mig í húsmóðurhlutverkinu. Á morgun stendur til að baka í formið góða sem fannst á Akureyri og skella í nokkrar kökur aðrar, en maðurinn lifir ekki á brauði einu saman og þá alls ekki á kökum.
Þar kemur að skortinum. Mig langaði nefnilega í fisk. Ég veit ekki alveg hvernig staðan er á fiskúrvalinu í kaupfélaginu hér (sem nú heitir Samkaup, en ég kalla aldrei neitt annað en kuffélajið), en rámar í ágætis kjötborð þar. Hér er engin fiskbúð. Og ek
ki heldur á Akureyri, ef út í það er farið. Þar var slík verslun lengi vel, en hún lagði upp laupana fyrir nokkrum árum, gafst upp í samkeppninni við fiskborð stórmarkaðanna. Mér finnst það galli, því það er gaman að versla í fiskbúðum, í það minnsta ef maður er með fagmann bak við búðarborðið og góða fiskilykt í nefinu.
Í Eyjafirði er því raunverulegur skortur á fiskbúðum. Ég velti fyrir mér hvort enn sé fiskbúð á Húsavík? Eða hvort helstu sjávarpláss landsins eigi það sameiginlegt að vera fiskbúðarlaus?
Verkefni morgundagsins, fyrir utan kökubaksturinn og mögulega heimsókn með tengdó á byggðasafnið á Hvoli, er því að rannsaka fisklager kaupfélagsins. Annars verð ég bara að senda frumburðinn, veiðikló heimilisins, niður á bryggju með stöng.
föstudagur, júlí 20, 2007
Skortur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Það er mjög fín fiskbúð á Siglufirði:-)
Mikið er ég sammála þér, það vantar algjörlega fiskbúð á Akureyri. Sorglegt bara. Í raun ætti þetta að vera eins og í den, kjötbúð, fiskbúð, mjólkurbúð, áleggin í heilum stykkjum í kjötborðum verslana og svo bað maður um ákveðinn sneiðafjölda.....mmm nostalgía!
Bara bjalla í 821 3160 og við reddum þér á sjóstöng erum á Ólafsfirði kv.Laufey
mér finnst stórmerkilegt að heyra að ekki sé ein einasta fiskbúð á Akureyri.
þá vantar mikið í plássið...
Þangað til göngin koma er fulllangt að renna til Siglufjarðar eftir fiski. Stangveiddur fiskur á Ólafsfirði hljómar aftur á móti afar vel. Takk fyrir þetta, Laufey.
Og er sammála Þorgerði og Betu um að það sé hreint ekki gott að hafa Akureyri fiskbúðarlausa. Fiskborðið í Hrísalundi er víst bara svo gott að það er erfitt að keppa við það.
Skrifa ummæli