laugardagur, júlí 28, 2007

Fjólublátt ljós við barinn

Nei, djók. En Lagavulin á stofuborðinu. Það er óendanlega svalt.

Það er sem sagt villt laugardagskvöld á Dallas. Eða svoleiðis. Við hjónin í rólegheitunum, örverpið (sem líka gengur undir nafninu Frumburðurinn) sofnað, og ég bíð bara eftir að nágrannarnir á ská bak við húsið mitt telji í og hefji partýlæti. Þannig hefur það verið um helgar fram til þessa, en í kvöld virðist tiltölulega rólegt. Kannski eru þeir búnir að fá nóg af partýhaldi, eða þetta voru unglingar að leika sér meðan foreldrarnir rúntuðu um með fellihýsið í góða veðrinu fyrir sunnan. Eða eitthvað.

(Hér kom stutt hlé, sem lesendur tóku ekki eftir, vegna þess að þetta blogg býður ekki upp á rauntímalestur. Hléið var tekið, meðan bloggari andaði í brúnan bréfpoka, til að jafna sig á að hafa skrifað "bíð" með ypsiloni. Sennilega er það merki (ypsilonið) um að ég þurfi að leggja mig. Þangað til hinn daginn.)

Mér dettur reglulega eitthvað stórsniðugt í hug að blogga um, en gleymi því jafnharðan. Þetta er vandamál, sem ég hef átt við að stríða býsna lengi. Einu sinni keypti ég mér svarta bók með teygju, eins og Denni er alltaf með, til þess að halda utan um alla þessa bráðsmellnu hluti og hugmyndir fyrir vinnuna. Gallinn var sá að í staðinn gleymdi ég bara bókinni alltaf einhvers staðar, svo þessi ráðagerð mín féll fljótt og örugglega um sjálfa sig.

Eitt og annað, sem ég man eftir að hafa látið mér detta í hug að skrifa um nýlega, en nenni ekki af því ég er ónytjungur:

  1. Vitleysingarnir í Björgum Íslandi. Bjarga hverju? Frá hverjum - eða hverju?
  2. Fleiri hégómanúmer. Mætti til dæmis KA FAN um daginn.
  3. Skondnar samræður okkar hjóna. Þær koma bara ekki alveg nógu vel út fyrir mig (ég er svona Sideshow Bob) og ég gleymi þeim yfirleitt áður en ég næ að koma þeim frá mér.
  4. Skemmtilegar tilviljanir, eins og að mæta gamla Peugeotinum mínum á leiðinni frá Flateyri í síðustu viku. Áttaði mig svo á að sennilega væri ég ein um að flokka þetta undir skemmtilega tilviljun.
  5. Hvað Vestfirðir eru ótrúlega fallegir og gott að gista í Korpudal.
  6. Beygingar töluorða.
  7. Trjámorð.
  8. Upprifjanir á verslunarmannahelgum. Klassískt á þessum tíma árs.
  9. Frekara blogg um dásemdir Dalvíkur.
  10. Hálfvitar.
Kannski kemur þetta einhvern tímann, en líklega ekki. Ég vil að lokum taka fram að mér hefur ekki dottið í hug að blogga um hundinn Lúkas. Það hefði verið að bera í bakkafullan Moggalækinn.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég býýýýð spenntur eftir færslu um beygingu töluorða. Svo máttu endilega smella inn færslu um afturbeygð fornöfn við tækifæri.

Kveðja,

Zyggi

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker