mánudagur, júlí 02, 2007

Ljónið á veginum

Ég nefndi það um daginn að ég gæti hæglega fallið í bíladellugryfjuna. Ég hefði sennilega átt að segja að ég væri með óvirka bíladellu. Hún fær yfirleitt ekki að blómstra, en í gærkvöldi náði hún sér á strik.

Ég fór að skoða Peugeotsíðuna og komst að því að nýr bíll, sem heitir Peugeot 308 er að koma á markað. Mér finnst hann æði og langar alveg að eignast þannig bíl.

Við áttum Peugeot 307 station, með glerþaki, sem er ótrúlega skemmtilegur fídús og virðist hafa orðið svo vinsæll hjá framleiðendum bílanna að flestar nýju týpurnar líta út fyrir að vera með glerþaki.

Peugeot og ég höfum átt samleið óslitið í ellefu ár. - Ég er sem sagt með netta Peugeotdellu. Hún byrjaði þegar ég var ólétt af syni mínum. Þá vantaði mig hentugan fjölskyldubíl, sem myndi ekki fara með fjárhaginn hjá rúmlega tvítugum námsmanni í leiguíbúð. Ég keypti þá ótrúlega lítið keyrðan, átta ára gamlan Peugeot 405, dekurbíl, sem gamall maður á Akureyri hafði átt.

Hann átti ég í sjö ár við mikla ánægju okkar beggja, mín og bílsins, en síðustu tvö árin fékk hann félagsskap á stæðinu, því þá höfðum við keypt næstu kynslóð (eða þarnæstu), Peugeot 406, árgerð 2000. Yndislegt að keyra hann og þeir sem hafa prófað þekkja Peugeotfjöðrunina, sem er ótrúlega mjúk og ég held að sé alveg sérstakt franskt fyrirbæri.

Síðan eignaðist ég Peugeot 206, sem var alltaf í geysilegu uppáhaldi hjá syni mínum, en var seldur þegar þurfti að kaupa fullorðinn bíl fyrir alla fjölskylduna. Þá varð 307 með aukasæti fyrir valinu. Mjög sniðugt; ekki risabíll, en sæti fyrir alla.

307 varð að víkja fyrir amerísku rútunni sem við ökum um á núna (aðallega Logi þó), Dodge, með sætum fyrir sjö og stóru farangursrými, þannig að þótt í honum sitji sjö, er samt pláss fyrir vagninn aftan við sætinn og meira til. Hann er líka með geymslurými ofan í gólfinu, sem rúmar helling. Kaninn kann svo sem alveg að smíða góða fjölskyldubíla.

Þegar ég var ólétt af Brynhildi keyptum við svo annan Peugeot 206, en station í þetta sinn, sem er smábíll, en samt með nógu plássi fyrir barnavagninn.

Ég prófaði líka Peugeot 1007, sem er enn meiri smábíll, með rennihurðum, en það er algjör snilld í borg, þar sem öll bílastæði virðast vera miðuð við Austin Mini. Hann var bara ekki nógu stór fyrir mig, meðan ég er í þessari barnavagnaútgerð.

Nú á ég nýjan draumabíl (fyrir utan nýja 308, 407 og 607, að ógleymdum jeppanum, 4007, sem er á leiðinni), en það er þessi hér: Peugeot 207 station. Mér skilst að hann sé ekki kominn til landsins enn, en mig langar...

Frúin myndi vissulega hlæja í betri bíl.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til fróðleiks Svanhildur.
Hér á landi eru tvær Peugeot 308 drossíur í þessum töluðu orðum. Gegt flottar! Peugeot fabrikkan er að láta taka upp hér á landi Evrópusjónvarpsauglýsingu víða á Suður- og Suðvesturlandi með miklu tilstandi.
Í auglýsingunni eiga eftir að sjást svartir sandar, lygnar ár, íslenskir þjóðvegir og sveitavegir, stöðuvötn, neðanjarðargöng og lúpínubreiður. Upptökum lýkur í dag.

Kv. J.

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker