föstudagur, júlí 13, 2007

S. Paug

Til er hópur fólks, sem treystir sér ekki til að læra venjuleg bílnúmer, og merkir því bílana sína sérstaklega. Þá er ég ekki að tala um húsbílaeigendur, heldur fólk með hégómanúmer.

Opinberlega heita þau víst einkanúmer, en Kaninn kallar þau vanity plates, sem er skemmtilega gott heiti og þjált í þýðingu.

Þessar hégómaplötur eru vissulega afar misjafnar. Sumar eru þó þannig að maður brosir út í annað, stundum leynir sér ekki að undir stýri er mikill húmoristi. Sá sem á númerið 313 er t.d. alls ekki svo galinn.

Ég hef samt sjaldan hlegið eins mikið og fyrir nokkrum dögum, þegar fram hjá mér keyrði bíll, sennilega í eigu manns, sem gæti heitið Guðmundur Örn, Gunnar Örn eða jafnvel Guðbjartur Örn, svo nokkrar möguleikar séu nefndir. Allavega virðist hann heita of löngu nafni fyrir svona hégómaplötu, og hefur valið styttinguna G Örn.

Þangað til annað kemur í ljós, leyfi ég mér að ætla að honum finnist þetta jafn fyndið og mér.

6 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Hér, þar sem ég bý, í úthverfum Chicago, er mikið um þessi einkanúmer eins og annarsstaðar. Hef ég lúmskt gaman af þeim. Á rauðu ljósi í dag var bifreið fyrir framan mig og vissi ég ekki hvert ég ætlaði þegar ég las KLOF á númeraplötunni.
Á þeirri stundu óskaði ég þess heitt og innilega að hafa annan Íslending mér við hlið:)

Nafnlaus sagði...

Fólk með hégómanúmer á ensku verður alltaf svo neyðarlega fúlt þegar maður þykist ekki skilja hvað númerið á að tákna.
GÖrn er gott númer.
Hvað með TJón?

G. Pétur sagði...

Við sem heitum Guðmundur teljum að þetta sé bara fyndið og ekkert annað.

Nafnlaus sagði...

Sum þessara númera eru hreint út sagt ömurleg en lýsa eigendum sínum. Ekki langar mig að kynnst manninum sem hér á landi merkið PIMP og enn síður þeim sem er með táknið fyrir pí - getið svo hvaða hallærisleg heit koma þar fyrir aftan. Það er nú talsvert grín gert að þeim í ameríku sem eru með hégómaplötur

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Já, þið segið það. Mér finnst T Jón góð hugmynd, KLOF fyndið (af því það á ekki að vera það) og einkanúmerið pí í sjálfu sér svalt, án allra viðbóta altso. Ég hugsa að ég myndi fá mér formúlu Eulers, bara upp á grín, ef ég þyrfti að fá mér svona númer.

Nafnlaus sagði...

Á eftirmiðdegi í Kópavogi sá ég vel til hafða konu á dýrum bíl, BMW að mig minnir, með hégómanúmerið MILF.... eða Mom I'd Like to F***

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker