fimmtudagur, júlí 19, 2007

Ég er...

...andleg eyðimörk þessa dagana, eins og sjá má á blogginu. Hér er býsna gestkvæmt og skapandi störf eru aðallega unnin í eldhúsinu.

Framundan er árs afmæli yngsta barnsins og ferðinni heitið til Akureyrar að kaupa bangsaform.

Fleira er ekki í fréttum. Held ég. Annars gæti það alveg verið, ef hausinn á mér væri ekki teflonhúðaður af ferðalögum og svefnleysi.

P.s. Ef einhver hefur áhuga á að spila golf við kjöraðstæður ætti hann að skella sér á völlinn í Svarfaðardal núna. Hér er stafalogn, sautján stiga hiti og sólarlaust. Golfveður eins og best verður á kosið.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja þá. Ég skal fara í golf fyrst þú suðar svona mikið.

Logi

Elísabet sagði...

í góðu lagi á meðan þú ert ekki með vökva í höfði.

til hamingju með afmæli dótturinnar:)

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Takk fyrir. Og nei, ég held ég sé vökvalaus að mestu.

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker