miðvikudagur, júlí 25, 2007

Allý Bo-tel

Sá sem fattar fyrirsögnina núna, án þess að lesa lengra, á inni kaffibolla hjá mér.

Ég er sem sagt að lesa Harry Potter. Eiginmaðurinn keypti bókina óbeðinn á Akureyri á föstudagskvöldið og kom með hana heim um miðja nótt. Ég þurfti að beita mig hörðu til að byrja ekki strax að lesa, því þá hefði ekki verið neitt afmæli á laugardaginn. Í það minnsta engin veisla.

Er nú að komast á þokkalegt skrið í lestrinum og lofar bókin góðu. Sé samt eftir að hafa ekki lesið sjöttu bókina aftur, eins og ég sá að stúlkan í móttökunni á hinu ágæta byggðasafni Dalvíkinga á Hvoli var að gera í síðustu viku. Eitthvað hefur fennt yfir atburði þeirrar bókar á þesssum tveimur árum frá því ég las hana í bakgarðinum á Ránargötunni.

Ekki fleira að sinni. Tölvan lætur vita að hún sé að verða rafmagnslaus.

Over and out.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er barnið farið að tala?
Kæmi svosem ekki á óvart.

Nafnlaus sagði...

Hah! Ég er orðinn þrautreyndur að lesa svona orð af reglulegum lestri á blogginu hans Sverris Páls, þannig að ég á inni hjá þér kaffibolla :)

Unknown sagði...

Ég er fremur seinlæs á ensku en þetta er býsna vel heppnuð bók, finnst mér, eftir 150 síður eða svo.
Sérkennilegt að lesa stóryrtar og illyrtar greinar fullorðins fólks um þessar ævintýrasögur og níð um höfund þeirra og áhugasama lesendur. Sumir þeirra, sem hafa komist með óyndi sitt á bloggdálka Moggans reyndar sjálfir rithöfundar, sem mistókst að ná vinsældum.
Eftir því sem á líður finnst mér Ron einhver alskemmtilegasta persóna bókanna.
Þetta er bara gaman

Magnús sagði...

Bubba Ho-Tep!

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Já, Gísli, að sjálfsögðu er barnið farið að tala :o) - Að vísu á það ekki heiðurinn af þessari fyrirsögn, heldur einhver Kínverji.

Og jú, svp, bókin er góð. Ef mér bara gengi eitthvað að lesa hana. Þetta er óþekkt ástand, að vera marga daga að lesa Potter.

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker