Við Brynhildur fórum í sund í gær. Þar fór fram brúnkukeppni utanhúss með og án atrennu. Skemmst er frá því að segja að ég náði ekki lágmarkinu og var dæmd úr leik í búningsklefanum.
* * *
Ég ákvað sem sagt að nota góða veðrið í gær. Ég hef svo sem gert eitthvað af því flesta daga, þrátt fyrir væl í gær um samviskubit yfir að gera ekki nóg af því. Það sést í það minnsta á heimilinu.
laugardagur, júní 30, 2007
Keppni
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
þú hlýtur að hafa svindlað fyrst þú varst dæmd úr leik - er bara að spá í hvaða aðferðum þú beittir..
Nei, ég þótti bara hafa vond áhrif á ímynd keppninnar, að mæta svona föl í laugina, þannig að ég fékk ekki að taka þátt. Ekki einu sinni í undanriðlum.
alltaf verið að fara illa með okkur föla fólkið. gerðu bara eins og ég og settu upp sólgleraugu:)
huhh greinilegt að ég var ekki í vesturbæjarlauginni daginn þann. Þá hefði þér fundist þú kaffibrún :-) Allt spurning um viðmiðið.
Skrifa ummæli