Brúna fólkið
Ég er dottin í Agöthu Christie. Það gerist öðru hverju. Þótt formúlan geti ært óstöðugan og biðin eftir hinu óumflýjanlega morði geti orðið fulllöng, eru þetta skemmtilegar bækur. Uppáhaldið mitt er spjátrungurinn Poirot.
Bækurnar, sem ég hef verið að lesa núna, eru frekar fyndnar, því þær eru skrifaðar áður en kynþáttafordómar voru fundnir upp, eða í það minnsta áður en það að telja brúna fólkið vitleysinga og ónytjunga, taldist óviðeigandi.
Sögupersónurnar, sem ferðast um í útlöndum á fyrsta farrými, býsnast yfir Aröbum, Indverjum, svertingjum og helst öllum sem eru eitthvað litaðir. Svo er gert í því að sýna fyrirlitningu Breta á útlendingum yfirhöfuð, jafnvel hinum bleiknefjaða Poirot, en sennilega hefur það átt að endurspegla víðsýni höfundar, að reka augun í það að þar væri fulllangt gengið.
Auðvitað er ég ekki sammála þessum persónum Agöthu Christie, en það er samt ótrúlega hressandi að lesa texta, sem er svo gjörsamlega laus við pólitískan rétttrúnað. Þetta er svolítið eins og Tinnabækurnar.
Enid Blyton átti víst líka að hafa verið einhver meiriháttar rasisti og geysilega óholl aflestrar fyrir óharðnaðar sálir. Ég las allt sem ég náði í eftir hana, sem barn, og held ég hafi ekki beðið neinn sérstakan skaða. Ég skildi eiginlega miklu síður, þegar þessi umræða kom upp, hvers vegna enginn syrgði hlutskipti aumingja Önnu (í hvaða bókaflokki eftir Blyton sem var), sem var hin hrædda og húslega stúlka holdi klædd. Hefði það ekki verið ástæða til að fá feminískt kast?
* * *
Ég minntist einhvern tímann á Orhan Pamuk, og bókina hans um svörtu bókina, The Black Book. Hana keypti ég í mars og byrjaði að lesa skömmu síðar. Hún hefur hlotið þau örlög að verða bók þessa árs. Ekki vegna þess að mér finnist hún svo frábær (hún er reyndar ágæt), heldur vegna þess að með sama áframhaldi klára ég hana um jól.
laugardagur, júní 16, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
velkomin í blogspot liðið;)
verð víst að viðurkenna að ég hef ekki lesið eina einustu Ísfólksbók, hef greinilega misst af miklu.
Það er ekki síst vegna hlutskiptis aumingja Önnu sem skrif Enid Blyton hafa ekki beint þótt fyrirmyndar fyrirmynd :) Það endurspeglaði gamaldags viðhorf þessarar ágætu skáldkonu sem þykja ekki til eftirbreytni í dag. Ég get þó tekið undir með þér að ég las bækurnar hennar með áfergju og held svo sem ekki að ég hafi hlotið varanlegan skaða af. Myndi ekki velja þær fyrir dætur mínar þó. Góðar kveðjur,
Hanna Kata
Skrifa ummæli