sunnudagur, júní 17, 2007

Jújú, 17. júní...
...er svo sem ágætur, þannig. Sérstaklega þegar hann lendir á virkum degi. Mér finnst hálfgert svindl að hafa 17. júní á laugardegi eða sunnudegi, en við því er lítið að gera.

Mér finnst miðbærinn líka ágætur, það er gaman að rölta þar um, fá sér kaffi, skoða í búðarglugga og fólk.

Þetta tvennt, miðbærinn og 17. júní fer aftur á móti ekki vel saman. Það þarfnast ekki frekari útskýringa.

* * *

Oft langar mig til að hafa einhvers konar Central Park hér í nágrenninu, þar sem ég gæti farið í göngutúr með vagninn, sest niður á kaffihúsi og lesið, og leyft krökkunum að leika sér á meðan.

Hljómskálagarðurinn er sennilega það sem kemst næst því að vera okkar Miðgarður, eða kannski Laugardalurinn, með húsdýra- og fjölskyldugarðinum. Það segir sig sjálft að það eru fjölskyldur sem eru til sýnis í þeim síðarnefnda.

Laugardalurinn er ekki í göngufæri fyrir mig og því stendur Hljómskálagarðurinn eftir. Hann laðar mig ekki að sér einhverra hluta vegna, enda er fátt við að vera þar.

Er ekki kominn tími til að hressa upp á Hljómskálagarðinn?

* * *

Og af foreldrum og börnum: Nú er fimmtán, sextán stiga hiti í götunni hjá mér. Já, veðurfarið hér er nánast norðlenskt. Um daginn var eins veður og við stjúpdóttir mín fengum okkur göngutúr ásamt Brynhildi út í ísbúð. Við vorum allar léttklæddar eins og lög gera ráð fyrir.

Fyrir utan ísbúðina var kona með barn, á að giska tæpra tveggja ára, sem var að verða vitlaust. Hún skildi ekkert í ólátunum. Ef ég hefði verið þetta barn, sem var með þykka prjónahúfu, í síðbuxum, flíspeysu sem var rennd upp í háls og dúnvesti þar utan yfir, hefði ég líka orðið vitlaus.

Mamman var í þunnum bol og yfirhafnarlaus, og væsti ekki um hana.

Kannski var þetta bara almenn óþekkt, en ég hugsa að klæðaburðurinn hafi ekki bætt úr skák. Mig langaði mikið að benda henni á það sem mér fannst augljóst, að barnið væri að kafna úr hita, en gerði það ekki. Síðast þegar ég benti móður á eitthvað sem mér fannst stappa nærri vanrækslu, fékk ég engar sérstakar undirtektir.

Það var á Kristnitökuhátíð á Þingvöllum, þar sem sólin skein sem aldrei fyrr í 23 stiga hita og allt brann sem ekki var smurt með sólvörn 15. Konan var með lítið berleggjað barn í kerru, sem var orðið á litinn eins og Bónusgrísinn, en gerði enga tilraun til að hylja það. Ég var búin að fylgjast með þeim í smá tíma, og stóðst svo ekki mátið og nefndi brunann á barninu . Sagði henni að hún gæti fengið sólvörn og brunakrem í þjónustutjaldi sem var rétt hjá, en nei, henni fannst þetta óþarfa afskiptasemi.

Ég veit að einhverjum finnst þetta örugglega of djúpt í árinni tekið, en... Stundum eru foreldrar fífl.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Velkomin heim, mamma!
Héðinn

Nafnlaus sagði...

heyr heyr 17 júní hátíðahöld í öll hverfi og kaffihús í hljómskálagarðinn, þetta er ég búin að vera að segja í mörg ár. Eða allavega öll þau ár sem ég hef átt börn sem eru samtals 3 ár.

Nafnlaus sagði...

Íslendingar eru skæðir með að ofklæða börnin sín, ég fór í hina áttina, þar sem elsta dóttirin fæddist í hitabylgju í Danmörku og ég gat ekki klætt hana nógu lítið, fyrstu vikurnar. Hef oft skammað mömmur fyrir að dúða börnin of svakalega.

Hins vegar dauðsé ég eftir að hafa ekki sett vin sonarins í peysu, í vetur einu sinni í 4-5 stiga frosti þegar hann kom, aðeins íklæddur stuttermabol og buxum, til að vera samferða mínum í skólann. Vildi til að hann hafði gleymt jakkanum sínum hér, þannig að ég setti hann í hann, en það var engan veginn nóg.

Og kaffihús í Hljómskálagarðinn, játakk!

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker