föstudagur, febrúar 22, 2008

Setning kvöldsins...

...í Bandinu hans Bubba:

UB: "Nú eru fjórir áhorfendur... öh... keppendur eftir..."

Okkur hjónum fannst þátturinn skemmtilegur. Margir onelinerar (jájá, það er bara ekki til gott orð yfir þetta fyrirbæri á íslensku, allavega kann ég það ekki) hjá Bjössa. Dómnefndin góð, með gestadómara, yfirdómara og öllu. Hæfilega kæruleysislegt og mér finnst það ekkert til vansa að muna ekki hvað allir heita. Bara rokk í því. Gott líka að vera ekki að hanga neitt á þessu, heldur keyra kosninguna í gegn meðan auglýsingar og smá spjall er í loftinu.

Bandið er líka frábært og Unnur Birna kom á óvart. Það er meira en að segja það að vera svona í beinni, með tiltölulega litla sjónvarpsreynslu, pródúsentinn í eyranu og klukkuna tifandi.

Sem sagt; bara fínt sjónvarp.

Og já, Logi - þátturinn þinn er líka svaka fínn... ;o)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þetta snæri hans Bubba einhvers konar Idolkeppni? Er þetta á Stöð 2? Og þá náttúrulega bara fyrir áskrifendur?

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Jú, þetta er á Stöð 2 og að sjálfsögðu bara fyrir áskrifendur. Stöð 2 hefur ekki komist inn á ríkisframlög eins og RÚV, hvort sem er beint eða óbeint, og þess vegna verður fólk að gerast áskrifendur, - í stað þess að verða það sjálfkrafa um leið og sjónvarp kemur á heimilið...

Kannski þarna sé komin hugmynd að sextugsafmælisgjöf ;o)

Nafnlaus sagði...

Hehe! Ætli það þýði nokkurð Ætli hann Eyþór Ingi verði þá ekki hættur - eða kannski ferkar þátturinn sá arna.

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker