Þetta blogg er vanrækt. Ég hef annir mér til afsökunar. Ég þekki fólk sem bloggar sáralítið og hefur ekkert sér til afsökunar. Nú ætla ég ekki að fara neitt að nafngreina þetta fólk, en það veit við hverja ég á og tekur þetta til sín.
Svo skal böl bæta...
* * *
Hvað skyldi þá vera að frétta? Tja. Í gær drap ég geitung. Það telst stórfrétt á mínu heimili, enda drep ég ekkert kvikt, nema roðamaura. Einhverra hluta vegna ná þeir ekki inn á friðunarlistann hjá mér. Geitungurinn þessi var að gera sér dælt við Brynhildi, og lengra nær ekki mannúð mín gagnvart þessum kvikindum. Hitt skiptið sem ég hef drepið geitung, þá reyndar heilan hóp þeirra, réðust ófétin á son minn og stungu illa. Hann rifjar þetta enn stöku sinnum upp, og það er til marks um hetjudáð mína, að honum er það miklu minnisstæðara hvað ég myrti flugufávitana með miklum tilþrifum, heldur en hversu bólginn og sár hann var um allan líkamann.
Svo er ég líka byrjuð að vinna aftur, og er í óða önn að samhæfa fjölskyldulíf og vinnu. Það er nú ljóta rassgatið. Ég mæli eindregið með því að fólk eigi börn meðan á námi stendur, og þá meina ég háskólanámi, það er óþarfi að börn eigi börn, því þótt það sé leiðinlegt að vera í prófum fram að jólum í stað þess að föndra með börnunum og allt það, þá er maður meira sjálfs sín herra, heldur en flestir eru í vinnu.
* * *
Annars er örugglega tíðindalaust á vesturvígstöðvunum, eða ég er búin að gleyma flestu markverðu. Við Inga fórum reyndar í dag og keyptum okkur minnisbækur. Mér veitir ekki af. Þurfti að hringja í mömmu í kvöld, til að spyrja hana hvað hún hefði talað um við mig þegar hún hringdi einhvern tímann eftir hádegi. Ég gat ómögulega munað það. Svo rann upp fyrir mér ljós í gærkvöldi, - ég hafði fyrir tveimur vikum lofað að skrifa smá minningarbrot fyrir ágætan mann, og senda honum umhælis. Svo steingleymdi ég því bara. Nú vil ég taka fram að ég hef aldrei sniffað lím, en mér þykir góð lykt af bensíni. Held að ég hafi bara dælt sjálf svona þrisvar á bílinn í sumar, svo ekki getur það verið málið.
Held að svarið hljóti að vera truflaður svefn, því einhvern tímann las ég það að mæður ungra barna stríddu við slæmt skammtímaminni. Það þyldi ekki allt þetta svefnleysi og/eða sírofinn svefn. Ég glími við hvort tveggja.
Inga sagði meira að segja í dag þar sem við sátum og borðuðum: "Er þetta hádegið þar sem ég blaðra og blaðra og þú situr bara og þegir?"
Þetta er í sjálfu sér ekkert merkilegt, nema fyrir þær sakir að ég hélt ég hefði verið að halda uppi samræðum. Jafnvel hrókasamræðum. Að sögn hafði ég bara setið og japlað á samlokunni minni án þess að segja orð.
Þarna er kannski komin skýringin á því af hverju ég held því reglulega fram að Logi muni ekkert sem ég segi honum. Ég hef sennilega aldrei sagt það.
mánudagur, ágúst 27, 2007
Órækt og óminni
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Þessu gleymska er alveg eðlileg og kallast brjóstaþoka ;D.. ég á barn sem er að verða þriggja ára og ég er enn að þjást af þessu :D
Sammála Söndru með brjóstþokuna...þetta er ekkert sniðugt. Eftir að ég átti minn litla fyrir rétt rúmum 4 mánuðum þá hef ég versnað, nb, ég var ekki komin á rétt skrið eftir þann 3 ára, þá hef ég oft og margsinnis þvegið á mér hárið tvisvar sinnum í sömu sturtuferðinni.
Þannig að ég óska þér góðs gengis með þitt:)
Góðar kveðjur úr Cary, Il, Svanfríður.
Ég toppa þetta með sturtuna, sat nefninlega einu sinni arfafúl fyrir utan vídeóleigu í firðinum með nammi í poka og beið blótandi eftir Wolfmanninum í góðan hálftíma, meðan karluglan dúllaði sér við að velja spólu... að mig minnti. Hið sanna var að ég hafði nú bara skotist ein á leiguna, en alveg snargleymt því meðan ég var þarna inni, keypti mér bara bland í poka og hökkti síðan út í farþegasæti...
Duah...
Stína.
Sammála þér með barneignir og háskólanám frekar en barneignir og vinnu. Álfhildur sem var í lögfræði með eyrnabarn á sama tíma og þú
Skrifa ummæli