Dóttir mín stillti á sjónvarpsmarkaðinn á Skjá einum í morgun. Verið var að auglýsa vöru, sem þar heitir Grenningar Tvennan. Jamm, segi og skrifa Grenningar Tvennan.
Þetta þótti mér óheyrilega vitlaust. Í fyrsta lagi að halda því fram að eitthvert duft, sem ætlað er til átu, geti verið grennandi, (án þess að vera eitthvert ólöglegt eiturbras) og í öðru lagi að klúðra heitinu á því svona gjörsamlega.
Það finnst mér, í besta falli, vera Bjána Legt.
fimmtudagur, ágúst 16, 2007
Bjána Legt
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Grenningar Tvennan?!???
Er Stein Hissa og Hneyks Luð Jafn Vel
Þetta Vörutörg er bara snilld, með betri skemmtiþáttum sem að ég hef séð. Sérstaklega handlóðin sem að þjálfa alla vöðva líkamans samtímis. Trúi ekki öðru en að hann fái betra "spot" í prime time áhorfið á Skjánum =)
Skrifa ummæli