...ótrúlega margt fólk, sem gistir á tjaldstæðum, í húsagörðum og bara hverjum lausum bletti, sem finna má.
Mér skilst að fólk hafi verið duglegt að skreyta hús og garða, og börn vinafólks okkar spurðu, þegar þau óku inn í bæinn í gær, hvort það væru að koma jól á Dalvík. Það liggur við.
Ég hef reyndar ekki séð mikið af bænum, eiginlega bara götuna mína, enda verið mest í eldhúsinu tvo síðustu dagana. Okkar reiknast svo til, eftir gestabók, að hingað hafi komið um 600 manns í súpu í kvöld.
Vona að þeim hafi þótt súpan ágæt. Mér er nokkuð sama þótt ég sjái ekki fiskisúpu næstu vikuna, eða svo.
laugardagur, ágúst 11, 2007
Hér er...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Missti af súpu, kom ekki fyr en seinnipart í gær en allt sem ég smakkaði á bryggjusvæðinu va sælgæti nema þorskurinn í álpappírnum. Og svo hitti ég margt fólk þó að þarna hafi verið fjarskalega langt frá 30 þúsundum, en það er uakaatriði
Skrifa ummæli