Mér fannst góður pistill Gerðar Kristnýjar á baksíðu Fréttablaðsins í gær. Hann má finna hér: http://visir.is/article/20070625/SKODANIR06/106250123
Hún skrifar sem sagt um hvernig talað er um ríku og frægu stelpurnar, sem eiga víst ekki að vera frægar fyrir neitt, eins og Paris Hilton og svo Önnu Nicole Smith. Ég veit ekki hversu oft ég hef hugsað einmitt þetta sem Gerður skrifar; hvers vegna fólk leyfir sér að tala svona um þessar konur.
Ég er enginn aðdáandi þeirra tveggja, Parisar eða Önnu Nicole, en þær hafa ekki truflað mig neitt í gegnum tíðina, né heldur Britney Spears. Britney er að vísu í svolítið öðrum flokki en hinar tvær, en líklega hafa þær þrjár átt fleiri fyrirsagnir í slúðurblöðum hins vestræna heims síðasta árið, en flestir hinna frægu ná út lífið.
En að punktinum, að vera frægur fyrir ekki neitt, sem oftast er haldið á lofti um Önnu og Paris. Hvað er eiginlega átt við? Skiptir svo miklu fyrir hvað fólk er frægt? Eins og til dæmis má lesa í pistli Gerðar, er Paris erfingi einnar stærstu hótelkeðju heims, með henni voru gerðar nokkrar raunveruleikaþáttaraðir, hún hefur gefið út plötu og verið fyrirsæta.
Þetta hangir sjálfsagt að einhverju leyti á þeirri spýtunni að hún var ekki óþekkt áður en allt þetta kom til, fyrir utan væntanlegan arf, en hún hefur í það minnsta sýnt að fólk hefur áhuga á því sem hún gerir, þannig að þeir sem bjuggu til þættina, gáfu út plötuna og fengu hana til að sýna föt fyrir sig, hafa talið það einhvers virði að leggja henni lið eða fá hana til að vinna fyrir sig en ekki einhvern annan.
Ég ætla ekki að detta í neinn sérstakan kvenfyrirlitningarmóðgunarham, en ég man í fljótu bragði ekki eftir mörgum karlkyns, sem hafa fengið þennan frægurfyrirekkineittogþarafleiðandiheimskljóskastimpil (nema ef vera kynni K-Fed sjálfum, eiginmanni Britneyjar, en samt ekki).
Það leiðir hugann að því hvort til séu einhver skilyrði fyrir því að verðskulda frægð, eða eitthvað sem ber að forðast til að fólk telji mann ekki hafa hlotið frægðina fyrir ekki neitt.
1) Það er betra að vera ómyndarlegur, jafnvel ljótur, eða í það minnsta þannig að því sé vart viðbjargandi með öllum mögulegum fegrunarráðum. (Hin langleita Paris Hilton er held ég engin sérstök fegurðardís, en það gleymist því hún er alltaf ákaflega vel tilhöfð.)
2) Ómæld fjárráð eru óæskileg, sérstaklega ef viðkomandi hefur ekki unnið til þeirra með eigin höndum eða hugviti.
3) Mikil athygli er ekki af hinu góða, en þar sem hún er í raun óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að verða frægur, er þetta skilyrði ákaflega erfitt viðureignar.
4) Að vera kvenkyns er sérstakur akkilesarhæll.
Það fer sem sagt frekar í taugarnar á mér, þegar fólk segir í umvöndunartón: Hvað er eiginlega verið að segja fréttir af þessum konum, sem eru ekki frægar fyrir neitt nema að vera frægar?
Það leiðir líka hugann að hópi fólks, sem er ekki frægur fyrir neitt nema að vera einhvers staðar í erfðaröð krúnunnar í nokkrum Evrópuríkjum, en marga virðist þyrsta ákaflega í fréttir af, án þess að það sé álitið neitt athugavert. Guð veit að það fólk má hvergi vera án þess að einhver papparass birtist með myndavél og það er réttlætt með því að þetta séu opinberar persónur (sem þó gerðu ekkert af sér nema fæðast inn í ákveðna fjölskyldu) og fólk eigi rétt á að fylgjast með því og athöfnum þess.
Margir þekkja Karólínudóminn, en hann var kveðinn upp eftir að Karólína prinsessa af Mónakó kærði þýsk blöð fyrir að hundelta sig og fjölskyldu sína. Hann segir að fólk í opinberri stöðu eins og hún, eigi víst rétt á friðhelgi einkalífs eins og aðrir, þrátt fyrir fréttaþorsta einhvers hluta almennings.
Þá er maður reyndar kominn út í svolítið aðra sálma en pælingar um það hvers vegna sumir eru taldir frægir fyrir ekki neitt, og þó: Þetta hnígur þó að þeim brunni, að slúðurblöð og fleiri virðulegri miðlar, segja fréttir af þeim, sem fólk vill helst lesa, heyra og sjá fjallað um.
Fyrst sagðar eru svona margar fréttir af kóngafólki, erfingjum hundgamalla dauðra kalla og hótelvelda, hlýtur að vera áhugi fyrir þeim. Jafnvel hjá þeim sem hneykslast yfir fréttaflutningnum af þessu einskisnýta þotuliði, sem eru svo margir að varla ætti nokkur að vera eftir til að koma þeim alltaf í efsta sæti yfir mest lesna efnið á Mbl.is.
Og skiptir þá einhverju máli fyrir hvað þetta fólk varð frægt í upphafi?
* * *
Fyrst minnst er á Moggann (og þetta á reyndar við um fleiri íslensk blöð): Af hverju er í lagi að skrifa og birta alls konar hluti um útlendinga, flugufregnir úr gulu pressunni, í jafn virðulegu blað, sem myndi aldrei láta hanka sig á að skrifa þannig um Íslendinga?
þriðjudagur, júní 26, 2007
Nokkur skilyrði til að verðskulda frægð
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
tja, veistu, ég er bara ekki sammála þarna. Reyndar fer fréttaflutningur af K-Fed og fullt af öðru liði álíka í mínar fínustu, og ég geri allt hvað ég get til að sleppa við að lesa fréttir af kóngafólki (já og til að kóróna þetta allt saman var ég hreint ekkert hrifin af Díönu prinsessu). Þessu er samt gersamlega troðið upp á mann, þvílíkt erfitt að komast hjá því að sjá þessar fréttir.
Það keyrði þó gersamlega um þverbak þegar einhver sjónvarpsstöðin úti í BNA hætti við að vera með viðtal við Michael Moore um nýju myndina hans, (eða frestaði því allavega ótímabundið) og verður í staðinn með viðtal við fröken hótelerfingja þegar hún kemur út úr fangelsinu.
Klárt þeir gera þetta vegna þess að þeir þykjast selja viðtalið við París betur. En samt! Þvílíkt fréttamat!?
Já, punkturinn er heldur ekki sá að það sé svo frábært að segja fréttir af þessu fólki, heldur að umræðan um verðleika frægðar þess er bjánaleg.
Mér leiðast flestallar þessar "fréttir", svo það sé á hreinu.
mér fannst þetta rumpugóður pistill hjá Gerði Kristnýju og það þarf nú tréhaus til að skynja ekki kvenfyrirlitninguna í þessum "frétta"flutningi. alltaf eru menn reiðubúnir að dæma konur hart fyrir meint "lauslæti" en karlar eru bara hressir og þurfa að sletta úr klaufunum (eða öðrum líkamspörtum). helv. tvískinnungur og ekkert annað.
Góð pæling. En svo má ekki gleyma því að við viljum láta segja okkur ævintýri, líf fólks sem við myndum aldrei komast í tæri við er kjörinn efniviður í nútíma ævintýri, jafnvel framhaldsævintýri. Og svo fáum við í bland tækifæri til að hneykslast pínulítið. Og það elskum við öll, allavega sum. Og segi svo hver sem er að þessar stelpur séu frægar fyrir ekki neitt!
Skrifa ummæli