Jæja...
...ég er sem sagt flutt, í það minnsta þangað til ákveðnum hlutum verður kippt í lag á Vísisblogginu. Ég er bara svo mikið kontrólfrík að ég verð að hafa fullkomna stjórn á mínu eigin bloggi, og það þýðir miklu fleiri fídúsa en Vísisbloggið býður upp á sem stendur.
Ég kann vel við WordPresskerfið, en það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Kannski þykir einhverjum það fánýtt, en það fór óstjórnlega í taugarnar á mér að vita ekki hver væri ástæðan, þegar teljarinn tók á rás; hver væri að linka á mann og í hvaða samhengi.
Ég bið bara mitt fólk á Vísi velvirðingar á liðhlaupinu, en sný aftur þegar ég fæ að ráða öllu sem mér dettur í hug og meiru til á blogginu mínu þar.
* * *
Kannski hefur einhver misskilið linkinn á rugluðustu keppni landsins, á ernae.blogspot.com (finn ekki hvernig ég bý til krækju á Blogger með safarivafra... abbsaggið). Ég kann vel að meta svona nördakeppni, enda áhugamaður um spurningaleiki hvers konar.
Það sem mér finnst magnað er að muna öll þessi smáatriði úr Ísfólksbókunum. Bækurnar eru jú 47 og persónurnar í þeim skipta örugglega hundruðum, þótt aðalpersónurnar séu ekki svo margar. Einhvern tímann kunni ég ættartréð utan að (já Erna, aðfasisti), en ég bendi á að ég kunni líka ættartré Njálu og öll möguleg tengsl sögupersóna þegar ég var sautján.
Nú gæti ég ekki hóstað upp einum tíunda af þessu þótt ég ætti að bjarga lífi mínu.
Ég vona að ég fari aftur að muna hluti þegar ég verð búin að koma upp börnunum, og hef meiri tíma til að nördast. Akkúrat núna er ég bara með valkvætt minni, og það er alls ekki öruggt að það sem ég man í dag hafi ég munað í gær, hvað þá að það verði finnanlegt í hausnum á mér á morgun.
Minnið er skrýtin skepna.
Annars er á döfinni að grafa upp Ísfólksbækurnar. Kannski ég geti þá verið með í þessari keppni.
* * *
Var að hugsa um þessar bækur í gær, meðan ég þrammaði um Vesturbæinn með Brynhildi á bakinu. Ég held að sú fyrsta hafi komið út 1983. Þá var ég níu ára. Til allrar guðs lukku byrjaði ég ekki að lesa þær þá, heldur nokkrum árum síðar, en var samt algjör kjúklingur þegar ég las fyrstu bókina.
Það var að mig minnir bók númer fimm í bókaflokknum, sem ég man ekki hvað heitir en var um einhvern lamaðan og getulausan afkomanda Silju og Þengils. (Já, afsakið, ég man ekki hvað hann heitir.) Hann hélt að hann væri hommi, en komst svo að því að það var algjör misskilningur. Hann var bara með byssukúlu í hryggnum eða eitthvað álíka. Ætli Gunnar í Krossinum ætti ekki að íhuga að kaupa sér málmleitartæki?
Ástæðan fyrir því að ég þakka guði og lukkunni fyrir að hafa ekki dottið í þessar bækur níu ára, er að þær eru varla við barna hæfi. Dónalegu senurnar eru ófáar, sérstaklega í fyrstu bókunum og mig minnir meira að segja að Margit Sandemo hafi sagt frá því einhvers staðar, að konum, sem áttu í einhverjum vandræðum á beðmálssviðinu, hafi verið ráðlagt að lesa þessar bækur.
Ég sem sagt las allar bækurnar 47 og held ég hafi tekið að minnsta kosti tvær umferðir á þeim. Það er þó orðið langt síðan ég las þær síðast. Þegar síðasta bókin kom út, fylgdi annar bókaflokkur, um Galdrahöfðingjann, sem ég man ekki hvort ég átti allan, og svo bókaflokkur sem hét Ríki ljóssins, eða var þetta sami flokkurinn? Ha, Erna?
Ég missti áhugann á honum, þegar hann leystist upp í eitthvert rugl, í þessu ágæta Ríki ljóssins, og allt í einu var farið að tína inn gamla félaga úr Ísfólksbókunum. Sá þrettándi varð full þunnur fyrir mig.
Velti því samt fyrir mér hvort þessi bókaflokkur hafi átt einhvern endi, eða orðið gjaldþroti útgáfunnar að bráð. Spyr ég nú enn, Erna... Eða einhver, sem er mér vitrari um þessi mál.
föstudagur, júní 15, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
wahaha, sko, það er öllum hollt að kunna < a href...
já, og ha? stærsti kosturinn við wordpress.com er einmitt hvað teljarinn er gegnsær og hvað þú sérð mikið um hverjir linka og hvaðan fólk er að stimpla sig inn á síðuna. En kannski var visir.is ekki með þann fídus inni. Wordpress.com rúlar...
Heldurðu ekki að ég hafi ekki verið búin að gleyma því eftir margra ára notkunarleysi... Eins og svo mörgu öðru.
Húrra, velkomin aftur á blogspot!
Einhvern tíma við tækifæri skal ég skrifa handa þér langa ritgerð með svörum við öllum Ísfólksspurningunum í færslunni. Eða útskýra þetta allt munnlega sem er kannski betra. A.m.k. er ljóst að akkúrat núna, klukkan þrjú að nóttu, er ekki mjög gáfulegur tími - jafnvel þótt það sé ekkert mál að gera undarlegustu hluti um miðjar nætur, sbr. próflestur okkar fyrir >13 árum. Þetta er t.d. ábyggilega besti hugsanlegi tími sólarhringsins til að diffra og heilda. Er það ekki annars?
Það er ótrúlega flókið að kommentera hérna. Hvers konar orð er eiginlega rxecywj?
Ég var að passa barn á heimil þar sem var til slatti af bókunum og ég las þá fyrstu spjaldana á milli á nokkrum dögum(meðan barnið svaf að sjálfsögðu) og ég var svo hrædd um að einhver sæi mig að ég held ég hafi verið blóðrauð í kinnum af vandræðalegheitum alla þessa viku, ég var fullviss um að ég væri að gera eitthvað af mér, sem gefur til kynna að ég hafi verið of ung. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að lesa fleiri því það hefði örugglega komist upp um mig, þó var ég orðin 12 ára.
Besti kosturinn er að eiga lénið sjálfur, kostar heldur ekki mikið og þar ræður maður öllu, sér allar tengingar og allt slíkt. Wordpress hentar mér mjög vel og enn hef ég ekki fundið neinar hömlur. Þar sem ég er sósíalískur lénsherra, býð ég þér hér með einn hektara á landareign minni með öllum gögnum og gæðum.
Annars var það alltaf fyndið með vísisbloggið hvað teljarinn tók á rás upp úr þurru. Ég trúði aldrei þessum tölum og sá stundum um miðjar nætur þegar hann hækkaði um 30-40 við það að notandi skráði sig inn og bætti við færslu. Aðsóknartölurnar eru jú mælikvarðinn á vinsældirnar og þess vegna held ég að visir.is hafi smurt þykkt á sínar.
Það væri ekki ónýtt að verða lénsmaður Málbeinsins...
þér stendur til boða hér með að verða malbein.net/svanhildur. Ég er mildur lénsherra og geri engar kröfur um loðnar og lembdar ær að vori.
Skrifa ummæli