sunnudagur, nóvember 11, 2007

Jahérna

Það er víst kominn 11. nóvember. Fæðingardagur Matthíasar Jochumssonar og Kristbjargar Héðinsdóttur, vinkonu minnar og íbúa í Laxárvirkjun 4 hér í den. Einu sinni fengu MA-ingar frí þennan dag, Matthíasi til heiðurs, en mér skilst að það sé liðin tíð. Við fengum líka hlaupaársfrí, ég veit ekki hvort það er líka búið að vera, ætli það komi ekki í ljós 29. febrúar 2008? Og vetrarfrí, Brynjufrí og söngsal... Í minningunni er þetta eitt gott frí, fyrir utan próftíðir og síðustu tímana í efnafræði á föstudögum í 2. bekk.

En, já. Það er nákvæmlega ekkert markvert að frétta. Ég fer í vinnuna, er þar fram á kvöld og fer svo heim. Tókst að vísu að ná langri helgi í síðustu viku og fara norður. Fórum á tónleika nýdanskra í Samkomuhúsinu á þriðjudagskvöldið. Það var góð skemmtan. Björn og Jón voru í hlutverki sögumanna og svo kom í ljós að Daníel Ágúst, sem var sá leynigestur sem minnst hefur komið á óvart í heiminum, (ekki síst eftir að hann var látinn skipta um streng fyrir Stefán Hjörleifsson og færa honum gítarinn inn á svið), var líklega einn af um það bil tveimur í húsinu, sem ekki mundi textann við Frelsið. Það vakti mikla lukku, bæði í bandinu og úti í sal, en eftir örstutta upprifjun rann textinn og lagið ljúflega. Þeir voru frábærir.

Ég hafði gert þau mistök að tæma vasana af smápeningum áður en ég fór að heiman, - ég hefði haft mikil not fyrir þá á tónleikunum. Tveimur bekkjum fyrir framan mig sat maður, sem hafði geysilega mikla þörf fyrir að syngja með hástöfum og láta öllum illum látum. Mér finnst að það eigi að vera bannað á svona tónleikum, og hefði látið peningana dynja á hausnum á honum hefði ég haft þá. Komst svo að því, eftir tónleikana, að ég kannaðist við kauða, svo ég lét mér nægja að segja honum, góðlátlega þó, að flestir hefðu sennilega verið komnir til að hlusta á drengina nýdönsku, en ekki hann. Hann tók því vel, og sagðist hafa verið fenginn til að halda uppi stemmningunni úti í sal... Hver fékk hann til verksins fylgdi aftur á móti ekki sögunni.

Ég reyndi að gera mér í hugarlund viðlíka aðstæður á tónleikum Melabandsins. Sé til dæmis einhvern mæta með sitt eigið selló og jafnvel magnara, og sarga af innlifun á fimmtánda bekk. Það væri gaman að sjá viðbrögð handhafa áskriftarkorta við því.

Annars þakkaði ég mínu sæla í dag, fyrir að hafa ekki ákveðið að fara á Edduna. Brynhildur missti nefnilega rjómasprautuna, kílósþungt járnflykki, ofan á tána á mér, sem nú er tvöföld og óbeygjanleg, og hefði ekki með nokkru móti verið hægt að koma í neitt fínna en gúmmístígvél í kvöld. Kannski einhverjum skrýtnum, sjálfskipuðum tízkugúrú hefði þá þótt ég töff - í sparikjól og stígvélum?

Svo er ég búin að lesa Harðskafa eftir Arnald. Hún er góð. Jón Yngvi ætlar að gagnrýna hana í Íslandi í dag annað kvöld. Þetta er minn "ritdómur", nokkrar línur sem ég sendi Jóni áðan, í pósti um reyndar allt annað, en þar sem ég var nýbúin að leggja bókina frá mér, stóðst ég ekki mátið að blaðra aðeins um hana:

Mér finnst gott að lesa Arnald, því hann er svo auðlesinn. Gott mál, góður texti og bara ein innsláttarvilla í allri bókinni. (Þetta er mælikvarði hins einhverfa lesanda, sem ég jú er.) Textinn rennur vel, og mér líkar við Erlend. Hann er pínu Rebus, svo ófullkominn í sjálfum sér og krumpaður á sálinni, en góð lögga. Mér finnst Arnaldi líka takast vel upp að segja allar þessar sögur í einu, án þess að það rugli mann neitt og uppbygging sögunnar er oft góð, - hann segir manni ákveðna hluti fyrst og lætur mann svo fylgjast með einhverri persónunni, sem er í þann veginn að fara að upplifa þá. Það er nettur Íslendingasagnafílíngur í þessu; forboði, atburður og frásögn. Helst fannst mér vanta einhverja spennu í þetta, en svo er ég samt ekki viss, því einhver hallæris[ritskoðað]spennuendir hefði verið ótrúlegt stílbrot í þessari lágstemmdu og kurteislegu sögu um Erlend vin minn. Mér finnst þetta nefnilega fyrst og fremst vera saga um Erlend. Ekki Maríu eða Baldvin eða Leónóru eða Guðrúnu, Davíð eða yfirhöfuð neinn annan sem nefndur er á nafn.


Ég myndi allavega gefa þessari bók þrjár stjörnur.

Þannig er nú það. Við táin erum farnar í bælið.

3 ummæli:

Unknown sagði...

Það er ýmislegt sem börn grípa til í þeim tilgangi að halda foreldrunum heima hjá sér.

Hef ekki lesið Erlend enn. Satt að segja er orðið sjaldgæft að ég kaupi splunkunýjar bækur þegar ég á von á þeim á hálfvirði í almennilegu bandi fáum mánuðum síðar. Skil ekki eljuna í útgefendum að leggja megináherslu á rándýrt og óþægilegt haðspjaldaband.

Brynja Björk sagði...

Ég á heimtingu á að vita hvaða frí Brynjufrí er eiginlega? Eitthvað hefur það farið framhjá mér???

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Kiljur eru eðaluppfinning, og fara sérlega vel í rúmi.

Brynjufrí er frí til að fara í Brynju og kaupa ís. Bráðnauðsynlegt.

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker