fimmtudagur, október 04, 2007

Fyrirsögnin gæti alveg...

...verið áfram: "Þetta er nú ljóta veðrið". Það rigndi svo brjálæðislega þegar ég kom út úr Skaftahlíðinni, að ef ég hefði verið mikið seinni, hefði bíllinn minn verið flotinn burt.

Ýmsum þykir ég ekkert sérlega dugleg að blogga. Það er ekki alveg galið, en ég er venjulega svo þurrausin þegar ég kem heim á kvöldin, að ég næ rétt að vera mamma í svona klukkutíma, einn og hálfan á góðum degi, borða og gefa öðrum að borða, svæfa, og koma sjálfri mér í rúmið. Inn í þetta prógramm hefur mér ekki tekist að koma reglulegu bloggi, sem er þó sennilega ekki eina ástæðan fyrir bloggfallinu, heldur almennur skortur á sköpunargáfu.

Og svo vaknar aumingja litla barnið mitt alltaf, ef mér á annað borð dettur í hug að setjast niður og skrifa eitthvað. Kannski ekki nema von að hún sé svefnlétt, litla skottið búið að taka átta tennur á mánuði. Það tekur á.

Eins og við manninn mælt, heyrist í hlustunartækinu: Maaaammmma....

3 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Átta tennur á mánuði! Úff, greyið litla. Ég býð eftir að tvær fyrstu skjóti sér upp hjá mínum en átta á mánuði..ég vona að minn sleppi við það.

G. Pétur sagði...

Merkileg þessi krafa um að maður bloggi daglega að minnsta kosti. Virðist nokkuð almenn, hjá þeim sem ekki blogga. Er það ekki?

Nafnlaus sagði...

Langir dagar hjá Svanhildi, g. pétur :-)

Ég myndi hins vegar taka þetta sem hrós í stað neikvæðrar gagnrýni. Það verður að segjast eins og er að bloggarar eru afar misjafnlega skemmtilegir. Og fyrir þá sem vinna heima, hitta sjaldan fólk yfir daginn og finnst stundum fínt að pásurnar fari frekar í að lesa annarra manna blogg en að taka úr þvottavélinni, þá eru góðir bloggarar afar kærkomin tilbreyting.

Viðurkenni það hins vegar að ég hef engan áhuga á að bætast í hóp misskemmtilegra bloggara. Þá bíð ég frekar lengur eftir færslu frá frænku.

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker