laugardagur, maí 17, 2008

Tímamót, rólegheit og spillingarstarfsemi

Í dag urðu tímamót á Rás 2. Magnús R. Einarsson, útvarps-, tónlistarmaður og snillingur spilaði sitt síðasta lag rétt fyrir hádegisfréttir og flyst einhvern tímann í sumar yfir á Rás 1. Ég veit að ég á eftir að sakna þess að heyra í Magga á morgnana og held að það sé mun meiri spurn eftir honum en framboð á Rás 1 mun anna. Mér skilst að hann eigi að vera með einn þátt í viku. Þeir þættir verða örugglega pródúseraðir í spað og allt, en samt... Einn klukkutími af Magga? Uss.

Við unnum fyrst saman þegar kristnitökuhátíðin var haldin á Þingvöllum sumarið 2000. Ég var á hlaupum um Þingvelli, með stórundarlegt útsendingartæki á bakinu, og Maggi sá um tal og takka í stúdíói 1 í Efstaleiti. Eftir það varð ekki aftur snúið, mér fannst Maggi einfaldlega frábær, og við enduðum á því að vinna saman í morgunútvarpinu á Rás 2, þangað til það var lagt niður til að rýma fyrir Morgunvaktinni á Rás 1, sem var svo fyrirferðarmikil að hún varð að leggja undir sig báðar rásir Ríkisútvarpsins. Ég fór yfir í Kastljósið, og svo þaðan yfir á Stöð 2, en Maggi var alltaf fastur punktur á Rásinni.

En ekki lengur. Ég bíð spennt eftir fyrsta þættinum á Gufunni.

* * *

Á Dalvík ríkja rólegheitin ein. Við komum hingað í nótt, keyrðum eftir vinnu í gærkvöldi hjá mér og höfum haft það náðugt í dag. Logi er reyndar akkúrat núna í lokahófi blakliða í húsinu bak við okkur (hann er ekkert spes í blaki, en þarna er bjór), en ég er að hugsa um að fara að halla mér. Tiltekt í garðinum framundan og svoleiðis.

* * *

Við keyrðum fram Svarfaðardal í kvöld, Brynhildur vildi endilega fara í bíltúr. Sáum kindur, lömb, kýr, hesta, og fáránlega marga máva lengst fram í dalnum. Ég velti því fyrir mér hvort þeir væru eitthvað ruglaðir, en þeir virtust vera þarna við ána í góðu yfirlæti. Logi hélt í það minnsta að það væri allt í lagi með þá. Sennilega væru þetta bara alvöru mávar, sem eltust við fisk og náttúrulegar fæðutegundir, en ætu ekki bara pylsubrauð, Dominospizzur og annað kemískt æti.

Við keyrðum nokkuð innblásin til baka yfir þessum rammíslensku og heilsusamlegu mávum. Ákváðum svo að stoppa rétt áður en við komum í bæinn til að leyfa Brynhildi að spjalla við nokkra hesta. Brynhildur gaf þeim pylsubrauðið sitt, sem þeir átu með bestu lyst. Svo ókum við heim, aðeins minna innblásin, eftir að hafa spillt svarfdælskum hrossum með kjörfæði reykvískra máva.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hér í bænum er allt á milljón um helgina. Ég er ásamt stórum hópi fólks á salsa námskeiði hjá salsaiceland, en við erum svo heppin að fá heimsmeistara í salsa dansi til að kenna okkur. Var sýnt örstutt frá upphitun í 10 fréttum á fimmtudag, en stuttu eftir að myndatökumaður rúv fór var okkur hent út af staðnum og sú skýring gefin að við keyptum ekki nógu mikið áfengi... Ah, well. Verðum á Sólon í kvöld og allir hafa lofað að kaupa einn drykk svo það endurtaki sig ekki...
kv
dýralæknirinn

Sverrir Páll sagði...

Er það rét hjá mér að ég sé að bíða eftir grein frá þér, allt að 50 orðum eða svo?
svp

Sverrir Páll sagði...

Vantaði eitt t í rétt
sami

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker