þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Sko...

...ég ætla ekkert að fara að býsnast út í snemmbúin jól, en samt - er ekki fullsnemmt að bjóða manni gleðileg jól á mjólkurfernu, sem er með síðasta söludag 22. nóvember? Hvað þá að hafa átt svoleiðis fernur í skápnum í um það bil tvær vikur, nú þegar þetta er skrifað.

Fyrst ég er byrjuð að nöldra; ég er í fýlu út í Lyf og heilsu í dag. Fór í uppáhaldsapótekið mitt á horninu á Melhaga og Hofsvallagötu og komst að því að þar er verið að pakka niður öllu skemmtilega dótinu, snyrtivörunum og því sem sennilega fellur undir munað. Þegar ég spurði hverju sætti, var mér sagt, að Lyf og heilsa væru að draga saman þarna, fljótlega yrði þetta bara eitthvert apótekaraapótek, án skemmtilegu hlutanna. Hrmpfh. Ég mun samt áfram geta leyst út lyf, keypt hóstasaft og svoleiðis, en ég er búin að skipta við þetta apótek síðan ég flutti á Reynimelinn fyrir tólf árum, og vil ekki sjá svona breytingar. Get ég fengið Vesturbæjarapótekið mitt aftur?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef ég gæti fært þér eitt stykki Vesturbæjarapótek, dúfan mín, þá mundi ég gera það án tafar. Þykir vænt um að vera Héðinn minn... :)

Elísabet sagði...

sammála, það er nauðsynlegt að geta gramsað í "skemmtilegum" vörum á meðan maður bíður í apóteki...svo er ég líka alveg á móti þessari helv. keðjumyndun hjá fiskbúðunum. hundleiðinlegt að þær missi allan karakter.

ekkert er eins og það var og hefur aldrei verið, hrmpff!

Kata sagði...

Ó guð, þetta eru hræðilegar fréttir með apótekið. Skemmtilegustu stundir hverrar konu eru auðvitað í vel útilátnu apóteki, a.m.k. mínar. En hugsaðu bara hvað þetta mun fara vel með pyngjuna. Þó að svoleiðis hugsunarháttur sé auðvitað dauðanum leiðinlegri.

Nafnlaus sagði...

Óska þér og þínum gleðilegra jóla!

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker