miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Plata dagsins...

...er Ferðasót Hjálma. Hún var reyndar líka plata gærdagsins, mánudagsins og helgarinnar, og ekkert bendir til þess að hún verði ekki plata morgundagsins.

Það er langt síðan ég hef dottið svona í íslenska plötu. Ég bíð bara eftir því að samstarfsmenn mínir fari að gráta undan Hjálmum, eins og vinnufélagar mínir í unglingavinnunni, sem geta örugglega ekki enn þann dag í dag hlustað á plötuna Zooropa með U2. Ég á það víst til að ofhlusta á tónlist.

Hér á kontórnum fer stundum fram samhlustun. Við Oddur unum okkur vel við að kynna nýja tónlist hvort fyrir öðru og rifja upp gamla slagara, Sölvi virðist láta sér það lynda og tekur jafnvel þátt, en Inga lætur sem hún heyri ekkert, enda ekki fulltrúi tónvísra og sennilega með áhugalausara fólki um tónlist. Pródúsentinn okkar, hann Böddi, leysir þetta með því að sitja hinum megin með heyrnartól á kollinum.

* * *

Miðað við hvað ég er mikið fyrir tónlist, er eiginlega skrýtið hvað þessi tilhneiging, að hafa tónlist alls staðar, á biðstofum, í verslunum, hárgreiðslustofum, verkstæðum og guð má vita hvar, getur farið í taugarnar á mér.

Ég byrjaði daginn á að fara í klippingu. Ég á yfirleitt fyrsta tíma dagsins hjá Arnari og oft erum við ein á stofunni til að byrja með, í fullkominni þögn. Þegar næsti starfsmaður kemur er kveikt á græjunum og diskur númer njöhundruð af Buddhabar settur á. Mér þykir þetta svo mikill óþarfi, en er eiginlega í mótsögn við sjálfa mig, því mér finnst sjálfri ágætt að sitja við tölvuna með tónlist á.

Tískuverslanir með dúndrandi tónlist hvíla á botninum á vinsældarlistanum hjá mér. Það er nógu þreytandi að standa með hárið út um allt, á nærbuxunum einum fata í oflýstum mátunarklefa, þótt Nelly Furtado að myrða Maneater bætist ekki ofan á eymd manns.

6 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Ég fer einu sinni í viku á stað sem er tileinkaður konum-þar er til staðar nudd, þú getur farið til kírópraktors, sálfræðiaðstoð er til staðar og eitt og annað er hægt að gera þarna, sem sagt, staðurinn er kósý og er byggður upp til að gefa sálinni smá frí frá daglegu amstri. En tónlistin sem kemur úr litlum, vesælum geislaspilara er sú allra þunglyndislegasta sem til er..ég segi nú ekki að sjálfsmorðshugsanir leiti á mig en þungar geta þær orðið við tónlistarnauðgunina sem ég verð fyrir þarna. Þannig að ég ætla að gefa þeim mikið safn geisladiska við næstu heimsókn, safn sem ég sankaði að mér í tónlistarnámi og tel ég mig gera mikið góðverk með þessari gjöf:) Kannski að ljúfar hugsanir sæki að núna, það er von.

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Er þetta svona splojnk splojnk slökunartónlist? Hún virkar oft öfugt á mig...

Nafnlaus sagði...

langaði bara til að segja að það er flott nýja klippingin.

Ameríkufari segir fréttir sagði...

JÁ! Þetta er einmitt þannig tónlist.

Nafnlaus sagði...

Æi, finnst þér skemmtilegt svona útþynnt jesúpopp með brostinni vælukjóarödd? Ég fæ brjóstsviða þegar þetta byrjar. Spurning hvort það skánar þegar villingarnir í Flís koma í þetta gengi. Hingað til hef ég sem sagt ekki umborið þetta og ekki skilið hvers vegna það hefur náð vinsældum. En Íslendingar eru bara Íslendingar :)

Svanhildur Hólm Valsdóttir sagði...

Þetta er skemmtileg plata, - ég veit ekki hvort hún er mjög frábrugðin fyrri plötunum, en í það minnsta hef ég ekki fallið fyrir þeim fyrr en núna. Ég er enn að hlusta...

 
eXTReMe Tracker
eXTReMe Tracker